Atvinnuflugmenn boða verkfall í leiguflugi

Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, staðfestir verkfallsboðun félagsins við mbl.is, en hana samþykktu 94 prósent félagsmanna við atkvæðagreiðslu. mbl.is/Hulda Margrét

„Kosningaþátttaka var 89,1 prósent og 94 prósent sögðu já, verkfall 20. nóvember ef ekki semst,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við mbl.is um boðað verkfall flugmanna Icelandair í leiguflugi.

Hann segir markmiðið vera að ná kjarasamningi, „okkar markmið er ekki átök eða einhverjar róstur, okkar markmið er að ná kjarasamningi“, segir formaðurinn og bætir því við að á kjörskrá hafi verið 621 flugmaður Icelandair.

„Menn eru mjög virkir í félaginu og mjög góð þátttaka í öllum kosningum á okkar vegum, við erum að hittast núna hérna uppi í félagi og svo erum við að fara að hitta Icelandair á eftir,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, um kjarabaráttu félagsmanna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅