Carrick rekinn frá United
Enska knattspyrnufélagið Manchester United er búið að reka Michael Carrick að sögn Fabrizio Romano, blaðamannsins áreiðanlega.
Félagið sjálft hefur þó ekki staðfest tíðindin en ljóst er að Mauricio Pochettino verður arftaki Carricks.
United er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir tíu leiki og hefur aðeins unnið einn deildarleik á tímabilinu. Liðið hefur ekki unnið í síðustu átta deildarleikjum og gerði síðast jafntefli við Aston Villa, 4:4, á sunnudag.
Carrick tók við liðinu tímabundið í janúar en var ráðinn áfram í maí og skrifaði þá undir samning til ársins 2028.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗