Ver uppsagnir í Hafnarfirði en segir hægri hugmyndafræði ráða för í Reykjavík
Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, gagnrýnir harðlega uppsagnir starfsfólks Reykjavíkurborgar og segir þær fremur virðast byggja á pólitískri hugmyndafræði en fjárhagslegri nauðsyn. Hann segir hins vegar uppsagnir í Hafnarfirði hafa verið óhjákvæmilegar vegna grafalvarlegrar fjárhagsstöðu bæjarins.
Þetta kemur fram í grein Árna, sem jafnframt er formaður sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar, á Vísi þar sem hann ber saman fjárhagsstöðu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
„Bábiljan um erfiða fjárhagsstöðu Reykjavíkur fyrir og eftir sveitarstjórnarkosningarnar byggir frekar á söguskýringum Sjálfstæðisflokksins en raunverulegum tölum og samanburði við önnur sveitarfélög,“ segir hann.
Hann gagnrýnir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík fyrir að réttlæta umfangsmiklar uppsagnir starfsfólks með vísan til bágrar fjárhagsstöðu borgarinnar.
„Umræðan um Reykjavík hefur því hvorki verið málefnaleg né sanngjörn og frekar einkennst af innistæðulausum upphrópunum sem ætlað er að slá pólitískar keilur.“
Segir stöðuna betri en af er látið
Árni Rúnar vísar til árshlutauppgjöra sveitarfélaganna og bendir á að halli á rekstri A-hluta Reykjavíkur hafi verið um 22 þúsund krónur á íbúa á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar hafi hallinn verið 72 þúsund krónur í Hafnarfirði og 113 þúsund á Seltjarnarnesi.
Aðrir mælikvarðar dragi upp svipaða mynd. Skuldir á hvern íbúa í Reykjavík séu 1,5 milljónir króna en í Hafnarfirði tæplega 2,1 milljón króna. Aðeins í Kópavogi séu skuldir á hvern íbúa lægri en í Reykjavík.
„Bábiljan um ofurskuldsetningu Reykjavíkur er því fullkomlega innistæðulaus og einungis sett fram í pólitískum tilgangi – og nú til þess að réttlæta pólitískt leikrit í tengslum við uppsagnir og niðurskurð meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar í borginni.“
Hann segir viðbrögð meirihlutans í Reykjavík óhófleg.
„Eins og áður sagði hefur meirihlutinn í Reykjavík undir forystu Sjálfstæðisflokksins farið fram með miklu offorsi hvað uppsagnir starfsfólks borgarinnar varðar.“
Ver uppsagnir í Hafnarfirði
Öðru máli gegnir að hans mati um Hafnarfjörð, þar sem meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks hefur einnig gripið til uppsagna.
„Í Hafnarfirði berst meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks við alvarlegan fjárhagsvanda bæjarfélagsins.“
Hann bendir á að 23 störf hafi verið lögð niður, en nettófækkun nemi 18,6 stöðugildum.
„Það liggur því algjörlega fyrir að grípa varð til aðgerða svo sá grafalvarlegi vandi sem við stöndum frammi fyrir dýpki ekki. Hagræðingaraðgerðir sem innihalda þungbærar uppsagnir eru því nauðsynlegar.“
Að lokum veltir hann fyrir sér hvort aðrar ástæður liggi að baki uppsögnunum í Reykjavík.
„En samanburðurinn á stöðu Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga leiðir hugann að því hvort það sé ekki fyrst og fremst pólitísk hugmyndafræði, þ.e. hörð hægri stefna, sem sé meginhvatinn að baki þeim fremur en nauðsynleg hagræðing.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗