Robertson trúir því vart að þetta sé að gerast

Andy Robertson, varnarmaður Tottenham og fyrirliði Skotlands, er við það að slá landsleikjamet Kenny Dalglish.

Robertson leikur sinn 102. landsleik gegn Norður-Makedóníu á morgun og jafnar þar með met Dalglish sem hefur staðið í 40 ár. Hann getur síðan slegið metið gegn Sviss á mánudag.

„Ég fæ gæsahúð í hvert skipti sem ég hugsa um þetta,“ segir Robertson í viðtali við BBC.

Robertson ber gríðarlega virðingu fyrir Dalglish.

„Föstudagskvöldið snýst ekki um mig heldur besta knattspyrnumann sem Skotland hefur átt. Fyrir mér verður það alltaf Kenny.“

Robertson rifjaði einnig upp hvernig Dalglish heimsótti afa hans eftir frægan 4-0 sigur Liverpool á Barcelona árið 2019.

„Afi minn heyrði varla í okkur þrátt fyrir heyrnartækin, en hann heyrði hvert einasta orð sem Kenny sagði. Kenny var hetjan hans.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅