Sigurður hættur eftir glæsilegt ár í Færeyjum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson er hættur í Færeyjum.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson er hættur í Færeyjum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Sigurður Ragnar Eyjólfsson er hættur þjálfun karlaliðs NSÍ Runavíkur í fótbolta eftir að hafa stýrt því til færeyska meistaratitilsins á nýliðnu tímabili.

Félagið staðfesti brottför hans í morgun. Sigurður Ragnar segir í færslu á Facebook að hann vilji búa nær fjölskyldu sinni og vinum.

Hann tók við NSÍ fyrir um ári og vann í ár annan meistaratitil félagsins frá upphafi. Sá fyrri vannst árið 2007.

Sigurður Ragnar hefur verið nefndur í tengslum við þjálfarastörf á Íslandi en hann stýrði síðast Keflavík fyrir þremur árum. Hann ræddi meðal annars við Fylki áður en félagið réð Aron Baldvin Þórðarson.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅