SFS vilja endurmat gjalda á olíunotkun

Í nýrri greiningu SFS er fjallað um áhrif sem ört hækkandi kolefnisgjöld á jarðefnaeldsneyti hafa á sjávarútveginn og staða Íslands borin saman við nágrannalöndin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja mikilvægt að stjórnvöld endurmeti gjaldtöku vegna olíunotkunar í sjávarútvegi og láti hana taka mið af því sem gerist í nágrannalöndunum.

Í nýrri greiningu SFS er bent á að kolefnisgjald á gas- og dísilolíu sé nú 28,30 krónur á lítra en hafi verið 2,90 krónur þegar það var fyrst lagt á árið 2010. Gjaldið hafi því nær tífaldast að nafnvirði. Uppsafnaðar greiðslur sjávarútvegsins nemi á föstu verðlagi 40 milljörðum króna frá 2010.

„Á sama tíma hafa helstu samkeppnisþjóðir íslensks sjávarútvegs ýmist undanþegið fiskiskip sambærilegum gjöldum, frestað þeim eða bætt útgerðum þau upp. Ísland sker sig því úr,“ segir í greiningunni.

Ekki verði séð af fyrirliggjandi gögnum að gjaldið hafi haft afgerandi áhrif á olíunotkun í sjávarútvegi.

Hún hafi tekið að dragast saman löngu áður en gjaldið kom til, vegna hagræðingar, árangursríkrar fiskveiðistjórnunar og fjárfestingar í nýjum skipum og búnaði.

„Enn er enginn orkugjafi tiltækur sem getur komið að fullu í stað olíu á fiskiskipum,“ benda samtökin á.

Fram kemur að helstu samkeppnisþjóðir íslensks sjávarútvegs leggi ýmist ekkert kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa eða hafi gripið til ráðstafana sem mildi áhrif þess.

„Óbætt kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa, sem helstu samkeppnisþjóðir leggja ekki á, veikir samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs og eykur hættu á kolefnisleka án þess að losun á heimsvísu minnki,“ segir í greiningu SFS.

Í stað aukinnar skattheimtu ættu stjórnvöld að skapa skilyrði fyrir raunverulegum orkuskiptum með öflugri raforkuinnviðum, landtengingum og stuðningi við nýsköpun og fjárfestingar í loftslagsvænni tækni.

„Markmið kolefnisgjalds á að vera minni losun, ekki aukin skattheimta sem skerðir fjárfestingargetu og samkeppnishæfni greinarinnar.“

Stjórnvöld eigi að byggja frekari ákvarðanir um kolefnisgjald á mati á raunhæfum viðbrögðum, loftslagsávinningi og samkeppnisáhrifum og líta þar meðal annars til Færeyja, Grænlands, Noregs og Danmerkur.

„Til að jafna samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs og styðja við raunveruleg orkuskipti þurfa stjórnvöld að hverfa án tafar af braut hækkandi gjaldtöku.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅