Aðsend grein: Þörf á óháðri útgjaldaúttekt á örorkukerfinu

Í skýrslu OECD um stöðu íslenskra efnahagsmála á árinu 2025 er bent á að hlutfall örorkubótaþega af heildarfjölda íbúa á aldrinum 20-64 ára sé eitt hið hæsta á meðal 38 aðildarríkja stofnunarinnar. Á árunum 2007 til 2018 lækkaði örorkuhlutfallið í Svíþjóð úr nærri 12% í rúm 6%, á meðan það hækkaði á Íslandi úr rétt innan við 8% í tæp 10%. Á sama tímabili jókst heildarfjöldi íbúa hér á landi í þessum aldurshópi úr 184 þúsund í 205 þúsund. Í Danmörku og Finnlandi lækkaði örorkuhlutfallið einnig töluvert á sama tímabili en stóð í stað í Noregi, þar sem hlutfallið mælist þó hærra en hér á landi. Sá árangur sem náðst hefur við að lækka örorkuhlutfallið í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi skýrist fyrst og fremst af umbótum sem stjórnvöld þar hafa innleitt í hönnun og framkvæmd örorkukerfisins.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅