FIFA og Infantino í vandræðum í Bandaríkjunum?
Í kvörtun sem lögð hefur verið fram hjá bandarísku skattstofunni (Internal Revenue Service) er óskað eftir rannsókn á ásökunum um að fjármunir FIFA hafi verið notaðir til að greiða heimilishjálp sem starfaði eingöngu fyrir forseta sambandsins, Gianni Infantino, að því er The Guardian greinir frá.
Lögmaðurinn Abed Ayoub lagði fram kvörtunina og heldur því fram að starfsmaðurinn hafi eingöngu starfað fyrir Infantino og eiginkonu hans á heimili þeirra í Miami, á sama tíma og hann þáði laun eða fríðindi í gegnum aðila tengdan FIFA.
FIFA neitar því að hafa greitt heimiliskostnaðinn. „Forseti FIFA greiðir sjálfur allan kostnað vegna heimilisstarfsfólks,“ sagði talsmaður sambandsins við The Guardian.
Kvörtunin sannar ekki að brot hafi átt sér stað né staðfestir hún að rannsókn sé hafin. Reynist ásakanirnar á rökum reistar gæti FIFA átt á hættu að missa skattfrelsi sitt í Bandaríkjunum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗