Skólabíll með þremur börnum valt
Skólabifreið með þrjú börn innanborðs valt í Valdres í Innlandet og var eitt barnanna flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Ljósmynd/Lögreglan í Innlandet
Komandi vetur heilsar Norðmönnum í dag með snjókomu og fljúgandi hálku austanlands sem vestan og hefur fjöldi umferðaróhappa orðið í morgun við ferðir fólks í sitt daglega amstur, hvort sem er á vinnumarkaði eða skólabekk.
Sendi norska veðurstofan út gula viðvörun með spá sinni og tóku fréttir af árekstrum og útafökstrum að berast fyrir klukkan 8 í morgun. Í Røn í Valdres, sem er í Innlandet-fylkinu norður af Ósló, valt skólabifreið með þremur börnum og var eitt þeirra sent til aðhlynningar á sjúkrahús, þó ekki með alvarlega áverka.
Önnur skólabifreið, að þessu sinni með 24 börn innanborðs, ók út af veginum í Svarstad í Larvik, suður af höfuðborginni, en engin slys urðu þar á neinum.
Spá allt að fimmtán sentimetra snjóþekju
Í Ósló hafa strætisvagnasamgöngur gengið úr skaftinu í þungri færð og hefur mokstur gatna gengið hægt að sögn Eilif Swensen, upplýsingafulltrúa almenningssamgöngufyrirtækisins Ruter.
Að sögn Ingrid Bentsen, vakthafandi veðurfræðings norsku veðurstofunnar Meteoroligisk institutt, reiknar veðurstofan með allt að fimmtán sentimetra djúpum snjó víða um Austur-Noreg og eru stórar flutningabifreiðar í vanda staddar, margar á sumardekkjum sem er segin saga í Noregi þangað sem fjöldi slíkra bifreiða kemur akandi sunnan úr álfu dag hvern, oftar en ekki algjörlega vanbúnar til vetraraksturs.
Hefur þetta meðal annars orðið til þess að snjóruðningstæki berjast í bökkum við að ryðja umferðarþunga vegi á höfuðborgarsvæðinu sem utan þess.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗