Fannst á lífi eftir sex daga í kjarrlendi

Ástralska lögreglan að störfum.

Ástralska lögreglan að störfum. AFP

Unglingur sem hafði verið saknað í sex daga í þéttu áströlsku kjarrlendi hefur fundist á lífi.

William, en eftirnafn hans hefur ekki verið gefið upp, hvarf síðastliðinn föstudag þegar hann var í útilegu með vini sínum í kjarrlendi um 180 km austur af Melbourne í Viktoríuríki.

Yfirvölf höfðu áhyggjur af velferð piltsins, sem er 17 ára, vegna mikils næturfrosts. Lögregluhundar, kafarar og þyrlur tóku þátt í leitinni.

Eftir að pilturinn fannst var hann sameinaður fjölskyldu sinni, sem var afar létt og sagði hann ómeiddan en „í útgöngubanni til æviloka“, að því er BBC greindi frá.

Fékk kleinuhring

Björgunarmenn hífðu William í öruggt skjól og gáfu honum kleinuhring og vatnsflösku áður en hann var fluttur á sjúkrahús til skoðunar.

Móðir drengsins, Elizabeth Barkley, sagði fréttamönnum að unglingurinn væri „aðeins með nokkrar skrámur“ og virtist hress og heilbrigður.

„Honum líður vel, allt virðist vera í lagi, hann er við fullkomna heilsu,“ bætti hún við.

„Hann hélt sig bara á einum stað og beið eftir að vera bjargað og ég er alveg í skýjunum yfir því að hann sé á lífi.“

Hún bætti við í gríni: „Hann fer aldrei aftur út úr húsi.“

„Gerist ekki alltaf“

Lögreglan segir að lögreglumenn hafi verið afar ánægðir með að finna piltinn á lífi.

„Það gerist ekki alltaf,“ sagði Jason Benbow, starfandi varðstjóri hjá lögreglunni í Viktoríu. „Ég er viss um að hann hefur sögu að segja okkur fljótlega og við erum mjög spennt að heyra hana,“ bætti hann við.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅