Vinna undir sjávarmáli og í 650 metra hæð

Á meðal þeirra sem komið hafa að framkvæmdum við smíði Fossvogsbrúar er Köfunarþjónustan. Ljósmynd/Arctic Images

Frá því í vor hafa framkvæmdir við smíði Fossvogsbrúar staðið yfir. Framkvæmdum miðar vel áfram og þeir sem leggja leið sína um Fossvoginn geta nú glögglega séð burðarása brúarinnar í sjónum á milli Reykjavíkur og Kópavogs.

Á meðal þeirra sem komið hafa að framkvæmdinni er Köfunarþjónustan. Atvinnukafarar á vegum fyrirtækisins unnu þar til í haust, dag og nótt, við smíði brúarinnar neðansjávar. Vinnan fólst í að koma fyrir svokölluðum þurrkvíum á stauraundirstöður brúarinnar.

Þurrkví eru gríðarstórir stálkassar, sex metra langir, fimmtán metra breiðir og átta metra háir sem ætlað er að skapa umhverfi til að steypa brúarstöplana sem verða alls fjórir í sjónum. Nú má sjá umræddar þurrkvíar standa upp úr sjónum í Fossvoginum.

Köfunarþjónustan vinnur að uppsetningu snjóflóðavarna í Drangagili, upp af Neskaupsstað í Norðfirði. Vinnan hófst vorið 2025 og eru verklok nú áætluð árið 2028. Ljósmynd/Aðsend

Á sama tíma og þessi vinna stóð yfir neðansjávar var fyrirtækið einnig með teymi á sínum vegum í um 650 metra hæð yfir sjávarmáli í Drangagili, upp af Neskaupstað í Norðfirði. Þar vinnur Köfunarþjónustan að uppsetningu snjóflóðavarna í fjallinu. Vinnan hófst vorið 2025 og eru verklok nú áætluð árið 2028.

Verkefnið felst annars vegar í viðgerð eldri varna, neta sem sett voru upp árið 2001, og hins vegar uppsetningu nýrra varna, stórra stálgirðinga sem komið er fyrir í hlíðinni. Unnið er ár hvert frá vori fram á haust. Vinnubúðum hefur verið komið upp í fjallinu þar sem teymi tólf manna vinnur frá morgni til kvölds við byggingu varnanna yfir framkvæmdatímann.

Köfunarþjónustan hóf rekstur árið 1998 undir heitinu Köfunarþjónusta Árna Kópssonar. Þá sem og framan af var starfsemi félagsins afmörkuð við köfunarþjónustu en í dag er starfsemi félagsins þó talsvert fjölbreyttari. Ljósmynd/Aðsend

Meira en köfunarþjónusta

Köfunarþjónustan hóf rekstur árið 1998 undir heitinu Köfunarþjónusta Árna Kópssonar. Þá sem og framan af var starfsemi félagsins afmörkuð við köfunarþjónustu. Í dag er starfsemi félagsins þó talsvert fjölbreyttari en nafnið eitt gefur þó til kynna að köfunarþjónusta sé enn lykilþáttur í starfseminni.

Fyrirtækið hefur þannig vaxið og aukið talsvert við vöru- og þjónustuframboð sitt á undanförnum árum. Hefur sú þróun að miklu leyti átt sér stað með kaupum og sameiningum við önnur fyrirtæki. Helst má þar nefna að árið 2021 keypti Köfunarþjónustan rekstur Króla sem hafði í um fjóra áratugi sérhæft sig í innflutningi, uppsetningu og þjónustu við flotbryggjur hér á landi.

„Kaupin á Króla hafa reynst afar vel lukkuð viðbót við fyrirtækið. Við erum með flotbryggjur í vel flestum smábátahöfnum landsins. Það eru steyptar flotbryggjur frá sænska fyrirtækinu SF Marina sem hægt er að útfæra á ýmsa vegu eftir aðstæðum. Þá erum við einnig með svokallaðar flotkubbabryggjur frá fyrirtækinu MarineFloor sem hafa líka verið vinsælar hjá einstaklingum og fyrirtækjum,“ segir Helgi Hinriksson framkvæmdastjóri Köfunarþjónustunnar. 

Köfunarþjónustan er með flotbryggjur í vel flestum smábátahöfnum landsins, steyptar flotbryggjur frá sænska fyrirtækinu SF Marina sem hægt er að útfæra á ýmsa vegu eftir aðstæðum. Ljósmynd/Aðsend

Sérútbúinn bátur til mælinga

Á árinu 2023 keypti félagið auk þess rekstur Skutuls og við það bættist alhliða mengunarvarnarbúnaður og fyrsta viðbragð vegna mengunarslysa við vöru- og þjónustuframboð félagsins.

„Það er lykilatriði að brugðist sé hratt við með viðeigandi mengunarvarnabúnaði þegar mengunaróhöpp eða -slys verða þannig að sem minnst tjón verði á umhverfi okkar,“ segir Helgi. „Þróunin er sem betur fer sú að sífellt meiri meðvitund er um þessi atriði og vilji til að bregðast rétt við.“

Í kjölfar þess að Köfunarþjónustan keypti jarðfræðistofu Kjartans Thors var síðan stofnuð sérstök mælingardeild innan félagsins. Deildin býr yfir sérútbúnum báti til mælinga og veitir margs konar þjónustu í tengslum við rannsóknir á botni sjávar og stöðuvatna, svo sem fjölgeislamælingar, setþykktarmælingar og botnsýnatöku.

Umsvif félagsins í kjarnastarfsemi þess hafa einnig aukist á undanförnum árum með sameiningu við Köfunarþjónustu Sigurðar og kaupum á K-Tech Marine"kaupum á Köfunarþjónustu Sigurðar og K-Tech Marine.

„Við erum fyrst og fremst heppnir með mannskap. Hér eru menn sem veigra sér ekki við að vinna verkefni við eins krefjandi aðstæður og þær gerast. Annars myndi þetta varla ganga,“ segir Helgi Hinriksson framkvæmdastjóri Köfunarþjónustunnar. Ljósmynd/Arctic Images

Heppnir með mannskap

Köfunarþjónustan lætur sér þetta þó ekki nægja og tekur einnig að sér ýmis sérverkefni, eins og þau eru kölluð. Til þeirra teljast meðal annars fyrrnefnd snjóflóðaverkefni. Félagið hefur tæplega tveggja áratuga reynslu af slíkum verkefnum. Félagið sá fyrst um uppsetningu snjóflóðavarna í Tröllagili ofan við Neskaupstað á árunum 2010 til 2012. Frá því hefur félagið meðal annars unnið við byggingu varna á Patreksfirði, Flateyri, Siglufirði og nú síðast í Drangagili, ásamt því að veita ráðgjöf í fleiri verkefnum.

Til annarra sérverkefna sem Köfunarþjónustan sinnir teljast meðal annars ýmis konar girðingarverkefni, uppsetning fallvarnarbúnaðar, þykktarmælingar stáls og málmsuða ofan- og neðansjávar.

„Við erum fyrst og fremst heppnir með mannskap. Hér eru menn sem veigra sér ekki við að vinna verkefni við eins krefjandi aðstæður og þær gerast. Annars myndi þetta varla ganga,“ segir Helgi léttur í bragði.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅