Bóluefni tengt hryggskekkju
Ný samanburðarrannsókn MSD Animal Health og Hafrannsóknastofnunar Noregs (Havforskningsinstituttet) bendir til tengsla milli innihaldsefnis bóluefna og hryggskekkju hjá allt að helmingi eldislaxa. Niðurstöður voru birtar nýverið í Journal of Fish Diseases.
Í ljós kom að 39,2 til 51,7% fiska, sem fengu bóluefni sem innihéldu kálfafóstursblóðvökva (FBS), þróuðu með sér galla sem nefnist cross-stitch vertebrae eða krosssaumsvöxtur liða. Sami galli greindist hjá 0-1% fiska sem fengu bóluefni án FBS. Efnið er sagt í almennri notkun við framleiðslu á bóluefnum.
Notaðar voru fimm tilraunablöndur bóluefna með mismunandi samsetningu af FBS og óvirkjaðri veiru sem veldur brisbólgu í laxi. Með útilokunaraðferð var samvöxturinn svo rakinn til blóðvökvans, en leifar af honum geta orðið eftir í fullunnum bóluefnum.
Fiskar með alvarlegri hryggjarliðagalla uxu einnig hægar. Þeir sem höfðu galla í að minnsta kosti tíu samliggjandi hryggjarliðum voru með marktækt lægri sláturþyngd.
Í umræðukafla rannsóknarinnar er vöngum velt yfir mögulegum ástæðum þess að fiskarnir vaxi hægar, en þeir gætu til dæmis haft minni lyst vegna vanlíðunar eða verið með skerta sundgetu vegna samvaxtar hryggjarliðanna og þannig orðið undir í kappinu um ætið.
Tekið er fram að frekari rannsókna sé þörf. Þá er sleginn sá varnagli að flestir sem að rannsókninni koma séu starfsmenn MSD Animal Health og að fyrirtækið hafi einkarétt á framleiðslutækni bóluefna þar sem FBS sé ekki notað.
Jón Kolbeinn Jónsson, sérgreinadýralæknir lagareldis hjá Mast, segir rannsóknina áhugaverða en haldna ákveðnum göllum. Bæði vanti staðalfrávik og að hugað sé að mögulegum áhrifum bólusetningarinnar sjálfrar, án innihaldsefna. „En þetta verðskuldar nánari skoðun,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
