Forsætisráðherrann fékk rautt í fyrsta leik

Beinir Johannesen með Friðriki Danakóngi.

Beinir Johannesen með Friðriki Danakóngi. AFP/Emil Helms

Beinir Johannesen, forsætisráðherra Færeyja, fékk rautt spjald í fyrsta handboltaleik sínum eftir að hann tók við embætti forsætisráðherra.

Hinn 29 ára gamli Beinir leikur enn sem línumaður með Klaksvík í efstu deild Færeyja og sameinar þannig stjórnmálin og keppnishandbolta.

„Það er eiginlega fyndið að þetta skyldi gerast í allra fyrsta leiknum eftir að ég varð forsætisráðherra.

Ég held að dómarinn hafi ekki hikað neitt áður en hann sýndi mér rauða spjaldið,“ sagði hann í samtali við eurohandball.com.

„Það er frábært að hafa eitthvað sem dreifir huganum frá vinnunni og stjórnmálum,“ bætti Beinir við.

„Það er líka gaman að hitta handboltafjölskylduna mína í félaginu svona reglulega. Það skiptir máli að hitta vini sína.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅