Eiginmaður Kristrúnar seldi hlut sinn fyrir 102.113 krónur
Einar Bergur Ingvarsson, eiginmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, seldi 9,59 prósenta hlut sinn í Munnbitanum ehf. í júlí síðastliðnum fyrir 102.113 krónur. Félagið, sem rak Minigarðinn, óskaði eftir gjaldþrotaskiptum á dögunum.
Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Morgunblaðsins, sem greinir frá málinu í dag.
Athygli hefur vakið að Munnbitinn var nýlega fjarlægður úr hagsmunaskráningu Kristrúnar á vef Alþingis. Samkvæmt svari frá aðstoðarmanni ráðherrans átti hún sjálf frumkvæði að breytingunni í byrjun október, en skráningin var ekki uppfærð fyrr en 4. nóvember.
Í svari forsætisráðuneytisins er jafnframt tekið fram að hvorki Kristrún né eiginmaður hennar hafi komið að daglegum rekstri Munnbitans eða ákvörðunum um rekstur félagsins.
Rekstur Munnbitans hafði verið erfiður undanfarin ár. Viðskiptablaðið greindi frá því í síðasta mánuði að eigið fé félagsins væri neikvætt og samanlagt tap síðustu tveggja ára næmi 65 milljónum króna.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗