Hætti að skoða samfélagsmiðla eftir að félagi hans gekk upp að honum

CJ Egan-Riley, fyrrverandi leikmaður Manchester City, hefur greint frá eftirminnilegum ráðleggingum sem hann fékk frá Raheem Sterling snemma á ferlinum.

Egan-Riley segir Sterling hafa komið í veg fyrir að hann festist í því að lesa ummæli um frammistöðu sína á samfélagsmiðlum.

„Eftir einn af fyrstu leikjunum mínum með Manchester City fór ég inn í búningsklefann, tók upp símann og byrjaði að skoða Twitter,“ sagði Egan-Riley í viðtali við Tribune Dimanche.

„Þá kom Raheem Sterling til mín og spurði hvers vegna ég væri að skoða þetta.“

Getty Images

Spurningin virðist hafa haft mikil áhrif á unga varnarmanninn.

„Þetta var í síðasta skiptið sem ég gerði það.“

Egan-Riley segist síðan þá hafa forðast að lesa gagnrýni og umræður um eigin frammistöðu á netinu.

„Ég les aldrei lengur það sem fólk segir um frammistöðu mína. Þar að auki nota ég ekki þennan samfélagsmiðil lengur.“

Ráðleggingar Sterling hafa því fylgt Egan-Riley áfram á knattspyrnuferlinum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅