Vilja skýrari reglur og færri tafir
Að mati SI er umhugsunarvert hversu miklum tíma og fjármunum fyrirtæki þurfi að verja í að uppfylla kröfur regluverksins í stað verðmætasköpunar. mbl.is/Karítas
Ófyrirsjáanleg túlkun reglna og sein afgreiðsla mála hjá hinu opinbera draga úr fjárfestingu og hagvexti og bitna á endanum á lífskjörum. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Morgunblaðið.
Í könnun Outcome fyrir samtökin töldu 72% þeirra sem tóku afstöðu að einfaldari reglur og styttri og fyrirsjáanlegri afgreiðsla erinda hefðu mikil jákvæð áhrif á reksturinn. Málsmeðferð opinberra aðila hafði tafið verkefni eða fjárfestingar hjá 58% fyrirtækjanna.
Sigurður segir niðurstöðurnar skýr skilaboð til stjórnvalda. Fyrirtækin kalli fyrst og fremst eftir skýrleika, skilvirkni og fyrirsjáanleika. „Fyrirtæki geta lagað sig að flóknu og kostnaðarsömu regluverki, þótt flækjustigið sé í raun sóun fyrir samfélagið. En þau eiga erfitt með að gera áætlanir þegar túlkun reglnanna er ófyrirsjáanleg og afgreiðsla mála dregst á langinn,“ segir Sigurðu
Hann segir umhugsunarvert hversu miklum tíma og fjármunum fyrirtæki þurfi að verja í að uppfylla kröfur regluverksins í stað verðmætasköpunar. Mikil tækifæri séu til úrbóta sem þurfi ekki endilega að kalla á lagabreytingar eða aukin ríkisútgjöld.
Samtökin efna til umræðu um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu á fundi í Hörpu kl. 9 í dag.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
