Kvað fórnarlambið hafa verið í geðrofi

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Uppsala í gær.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Uppsala í gær. Ljósmynd/Domstol.se

Karlmaður á fertugsaldri hlaut í gær átján ára dóm fyrir Héraðsdómi Uppsala í Svíþjóð fyrir að særa annan, á þrítugsaldri, alvarlegum hnífstunguáverkum í íbúð í Sala Backe-hverfinu snemma að morgni laugardagsins 25. júlí. Lést fórnarlambið á sjúkrahúsi skömmu eftir atvikið.

Dæmdi, sem hringdi sjálfur í neyðarlínu eftir atvikið, var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, en í símtalinu við neyðarsímavörð bar hann því við að hinn hefði verið í geðrofi og stungið sjálfan sig í magann með banvænum afleiðingum.

„Ég sting þig!“

Sönnunargögnin voru honum þó ekki í vil, en á meðal þeirra var hljóðupptaka þar sem heya mátti hann öskra ítrekað „ég sting þig!“

Fyrir dómi sneri gerandinn sér að aðstandendum hins myrta og baðst afsökunar á gjörðum sínum sem dómurinn taldi virðingarvert þótt héraðsdómari tæki fram að afsökunarbeiðnin yrði ekki metin sakborningi til refsilækkunar og dæmdi manninn til átján ára fangelsisvistar fyrir manndráp og ólögmætar hótanir.

SVT

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅