Sakar landsliðsmann um ítrekuð framhjáhöld
Amanda Martins, eiginkona Wesley França, leikmanns Roma og brasilíska landsliðsins í fótbolta, hefur sakað hann um að hafa ítrekað haldið fram hjá henni, meðal annars á meðan hún var barnshafandi.
„Wesley França hefur haldið fram hjá mér nokkrum sinnum, meðal annars með vændiskonum,“ fullyrti hún á Instagram. Hún sagðist hafa fundið ljósmyndir og myndbönd í síma hans.
Martins sagðist hafa reynt að bjarga hjónabandinu en ákveðið að tjá sig opinberlega eftir vangaveltur um samband þeirra. Hjónin eiga saman dóttur.
Wesley, 23 ára hægri bakvörður sem gekk til liðs við Roma frá Flamengo árið 2025, hefur ekki svarað ásökununum opinberlega. Hann hefur leikið átta leiki fyrir brasilíska landsliðið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/16/1691601.jpg)