Long og Lee Child mættu á opnunarhófið
Alþjóðlegu glæpasagnahátíðinni Iceland Noir var hleypt af stokkunum með pompi og prakt á Vinnustofu Kjarvals í gær.
Hátíðin skartar stórum nöfnum í ár, bæði íslenskum og erlendum, innan bókmenntasenunnar. Skipuleggjendur hátíðarinnar, Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Sigurðsson glæpasagnahöfundar, buðu gesti velkomna.
Lee Child, breski spennusagnahöfundurinn, var á meðal þeirra sem mættu á opnunarhófið.
Skipuleggjendur hátíðarinnar, Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar sigurðsson glæpasagnahöfundar. mbl.is/Hákon
Kanónur sækja Ísland heim
Þar voru fleiri góðir gestir, þar á meðal Andri Snær Magnason og Arnaldur Indriðason rithöfundar, Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Mangahöfundurinn Makoto Yukimura, leikarinn Thomas Santelmann og rapparinn Tinie Tempah eru einnig gestir hátíðarinnar í ár.
Fleiri rithöfundar sem koma fram eru til dæmis Lucy Foley, Sofi Oksanen og Chris Chibnall.
Dagskrá Iceland Noir má finna hér en viðburðir standa yfir fram undir sunnudagsmorgun. Hún fer fram á hinum ýmsu stöðum í Reykjavík, einna helst á Vinnustofu Kjarvals, í Fríkirkjunni og Iðnó.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur. Iceland Noir er ein af fimm borgarhátíðnum og sú eina sem helgar sig bókmenntum. mbl.is/Hákon
Ragnar Helgi Ólafsson rithöfundur spjallar við hátíðargesti. Fyrir aftan hann má sjá Úlf Þormóðsson rithöfund og enn lengra, á milli þeirra, James Prichard barnabarnabarn Agöthu Christie, einn af heiðursgestum Iceland Noir í ár. mbl.is/Hákon
Hrafnaþing glæpasagnahöfunda. Yrsa Sigurðardóttir vísar fingri að Arnaldi Indriðasyni á meðan Ragnar Jónasson, til vinstri, og Lee Child, til hægri, horfa á. mbl.is/Hákon
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






