Fjarvera Trumps táknræn
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er fremstur í hópi ráðamanna hinna ýmsu ríkja á COP31. AFP/Ozan Kose
Leiðtogar heimsins ræddu stöðu mála í tengslum við loftslagsvána á árlegri ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál, COP31, í Tyrklandi í gær.
Illa hefur gengið að ná fram sameiginlegum markmiðum alþjóðasamfélagsins um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum öllum.
Margir af æðstu ráðamönnum stærstu ríkja heimsins hafa gert lítið úr vandanum.
„Engum til undrunar, þá var Donald Trump [Bandaríkjaforseti] ekki mættur en hann dró Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu,“ segir í umfjöllun AFP-fréttaveitunnar um ráðstefnuna.
Margir af þjóðarleiðtogum fjölmennustu þjóða jarðarinnar voru fjarverandi. Lula da Silva, nýkjörinn forseti Brasilíu, lét sjá sig og Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, líka. Í því samhengi má einnig nefna Andy Burnham, forsætiráðherra Bretlands.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, á COP31-ráðstefnunni í Tyrklandi. AFP/Ozan Kose
Verði að fara sama veg og risaeðlurnar
Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tók til máls í gær og sagði jarðefnaeldsneyti verða að fara sama veg og risaeðlurnar.
Í svipaðan streng tók Hilda Heini, forseti Marshall-eyja, og þó dýpra í árinni en loftslagsbreytingar ógna þessum eyjaklasa í Eyjaálfu.
„Hver einasti nýi olíubrunnur er ógn við framtíð þjóðar minnar,“ sagði forsetinn.
„Heimurinn eins og við þekkjum hann, honum er lokið,“ er haft eftir forsetanum í umfjöllun breska miðilsins The Guardian.
Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, tók einnig til máls sem og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, en hvorugt minnsti á jarðefnaeldsneyti í sínum ræðum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


