Trump og Netanjahú sagðir hafa lent í heiftarlegu rifrildi um helgina – „Öskurkeppni frá helvíti“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 08:22

Trump og Netanjahú eru farnir að þekkjast vel.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, eru sagðir hafa lent í heiftarlegu rifrildi í síma um helgina vegna ágreinings um framhald stríðsins við Íran.

Netanjahú vill að Bandaríkin hefji hernaðaraðgerðir að nýju en Trump vill gefa friðarviðræðum tækifæri.

New York Post greinir frá þessu og vísar til umfjöllunar ísraelsku fjölmiðlanna Ynet og Yedioth Ahronoth.

Samkvæmt heimildarmönnum miðlanna þrýsti Netanjahú ítrekað á Trump að hefja árásir á Íran að nýju. Bandaríkjaforseti hafi hins vegar staðið fast á sínu og lagt áherslu á að halda áfram diplómatískum viðræðum.

Samtalið er sagt hafa orðið sífellt harðara og að lokum þróast út í það sem heimildarmenn lýstu sem „öskurkeppni frá helvíti“ (e. Shouting match from hell).

Skrifstofa Netanjahú hefur alfarið hafnað þessari lýsingu og kallað fréttirnar falsfréttir. Háttsettur ísraelskur embættismaður staðfesti að leiðtogarnir hefðu rætt saman um helgina en neitaði því að leiðtogarnir hefðu rifist.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fregnir berast af hörðum orðaskiptum leiðtoganna vegna Írans. Í júní greindi Trump sjálfur frá því í samtali við New York Post að hann hefði kallað Netanjahú „brjálæðing“ í einu símtali þeirra.

Financial Times greindi jafnframt frá því á dögunum að Netanjahú hefði hringt daglega í Trump til að hvetja hann til að hefja umfangsmikinn hernað gegn Íran að nýju.

Netanjahú hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að nauðsynlegt sé að steypa írönskum stjórnvöldum af stóli. Í ræðu á ísraelska þinginu á þriðjudag sagði hann stjórnarskipti einu leiðina til að stöðva kjarnorkuáætlun Írans til frambúðar.

„Íran vinnur að því að endurvekja kjarnorkuógnina. Eina leiðin til að útrýma þessari ógn til frambúðar er að steypa stjórninni,“ sagði hann.

Trump virðist hins vegar ekki á sama máli. Hann vill frekar beita efnahagslegum þrýstingi til að knýja Írana til eftirgjafar en að hefja nýjar árásir.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅