„Njósnasögur“ til að réttlæta tæknilega hindrun

Jensen Huang, forstjóri Nvidia.

Jensen Huang, forstjóri Nvidia. AFP/Joel Saget

Stjórnvöld í Peking sökuðu Bandaríkin í morgun um að nota tilhæfulausar ásakanir um njósnir sem átyllu til að beita Kína tæknilegri hindrun, í kjölfar fullyrðinga um að Jensen Huang, forstjóri Nvidia, hefði orðið fyrir barðinu á kínversku njósnasamsæri.

„Tækniframfarir Kína byggjast á sjálfstæðri nýsköpun og opinni samvinnu. Bandaríkin ættu að hætta að spinna upp slíkar ‚njósnasögur‘ sem átyllu til að beita tæknilegri hindrun,“ sagði Mao Ning, talskona utanríkisráðuneytisins, á reglubundnum blaðamannafundi.

Stjórn tæknirisans Nvidia er sögð undirbúa brottrekstur Jensen Huang, meðstofnanda og forstjóra fyrirtækisins, eftir að greint var frá því að hann stofnað til náins sambands við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅