Sakna auðvitað mömmu og pabba

Lúkas Petersson.

„Það er geggjað að fá að koma svona oft heim,“ sagði Lúkas Petersson, markvörður U21 árs landsliðs Íslands í fótbolta, í samtali við mbl.is.

Lúkas er uppalinn í Þýskalandi þar sem faðir hans, Alexander Petersson, lék í tæpa tvo áratugi sem atvinnumaður í handbolta. Móðir hans, Eivor Pála Blöndal, lék með íslenska landsliðinu í handbolta.

„Ég bý einn úti og það er alltaf gaman að sjá ömmu og afa, mömmu og pabba, litla bróður minn og vini mína.

Stemningin og menningin eru líka allt önnur hér. Það er alltaf svo gott að koma heim,“ sagði Lúkas.

Eftir að foreldrarnir fluttu heim til Íslands varð Lúkas einn eftir í Þýskalandi en hann kann vel við lífið sem ungur atvinnumaður í fótbolta.

„Það er líka mjög gott. Það er fínt að vera með eigin íbúð, vera með kærustunni og geta ráðið sér sjálfur. Ég hef búið við þetta sjálfstæði í þrjú ár núna.

Stundum sakna ég auðvitað mömmu og pabba og þess að þurfa kannski ekki að gera jafn mikið heima. En það er mjög gott að búa sjálfstætt,“ sagði Lúkas.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅