Bruna Ludmila þakkar Íslandi með rómantískri myndasyrpu
Bruna Ludmila fór um víðan völl á Suðurlandi og kom meðal annars við hjá Jökulsárlóni. Samsett mynd/Instagram
Brasilíska íþróttafréttakonan og fyrirsætan Bruna Ludmila, kærasta Jökuls Júlíussonar, söngvara Kaleo, virðist kunna vel við sig á Íslandi.
Hún birti nýverið myndasyrpu á Instagram þar sem hún gefur fylgjendum sínum innsýn í ferðalög sín vítt og breitt um landið.
Bruna gekk meðal annars á bak við Seljalandsfoss, kíkti að Skógafossi, fór jafnframt í Reynisfjöru, skoðaði Jökulsárlón og víkingaþorpið við Vestrahorn.
Af færslunni að dæma falla bæði land og þjóð þessari tengdadóttur Íslands vel í kramið.
„Takk, Ísland,“ skrifar hún á ensku við myndirnar og lætur íslenska fánann og hvítt hjarta fylgja með.
Parið bregður á leik í myndskeiðinu sem rekur lestina í myndasyrpunni. Þar reynir Bruna að lyfta Jökli við umferðargötu áður en þau fallast í innileg faðmlög á meðan norðurljós dansa á himninum fyrir ofan þau.
Sambandið vakti athygli í sumar
Bruna hefur meðal annars starfað fyrir ítölsku íþróttastöðina Sportitalia og hefur mikinn áhuga á bæði knattspyrnu og Formúlu 1. Greint var frá sambandi hennar og Jökuls fyrst á Smartlandi í júní síðastliðnum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bruna deilir minningum frá Íslandi með fylgjendum sínum. Í ágúst fjallaði Smartland um myndir hennar frá dvölinni hér á landi og virtist hún þá þegar hafa fundið sig vel á heimaslóðum kærastans.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗