Arsenal skoðar þrjá kosti fyrir sóknarlínu sína - Eitthvað gæti gerst í janúar

Hörður Snævar Jónsson

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 08:00

Antonio Nusa Getty Images

Arsenal hefur þrjá unga og spennandi leikmenn á óskalista sínum fyrir félagaskiptagluggann í janúar.

Samkvæmt The Independent er Lundúnafélagið að skoða möguleikann á að fá Alex Baena, Antonio Nusa eða Eli Junior Kroupi til félagsins.

Baena er 25 ára spænskur landsliðsmaður sem leikur með Atlético Madrid og getur leikið bæði á miðjunni og kantinum.

Nusa er 21 árs norskur landsliðsmaður hjá RB Leipzig en Kroupi er tvítugur franskur sóknarmaður hjá Bournemouth.

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, vill samkvæmt fréttinni skoða möguleika á að styrkja kantstöðurnar.

Ekki liggur fyrir hvort Arsenal hafi hafið formlegar viðræður við félög leikmannanna.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅