Hildur tjáir sig um umdeild veggjöld á höfuðborgarsvæðinu

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að Reykjavíkurborg muni ekki sætta sig við að veggjöld verði innheimt af almennri umferð á núverandi stofnvegum borgarinnar.

Hún útilokar þó ekki veggjöld á nýjum samgöngumannvirkjum, til dæmis göngum undir Miklubraut eða Sundabraut. Hildur segir borgina tilbúna að sýna ríkinu mikla mótspyrnu ef áform um gjaldtöku á eldri vegum verða að veruleika.

Þetta kemur fram í viðtali Morgunblaðsins við Hildi í dag þar sem hún ræðir meðal annars fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og óvissu um framgang hans.

Hildur segir borgaryfirvöld hafa gert ráðherrum ríkisstjórnarinnar skýra grein fyrir afstöðu sinni. Ekki komi til greina að setja upp tollhlið á stofnvegum á borð við Ártúnsbrekku.

Öðru máli gegni um nýjar samgönguframkvæmdir þar sem ökumenn geti valið á milli gjaldskyldrar leiðar og annarrar gjaldfrjálsrar.

„Við erum hins vegar reiðubúin til að fjármagna t.a.m. ný jarðgöng eins og Miklubrautargöng eða Sundabraut eða sambærileg verkefni með veggjöldum í einkaframkvæmd,“ segir Hildur meðal annars.

Hún segir borgina jafnvel geta beitt skipulagsvaldi sínu til að koma í veg fyrir gjaldtöku á eldri stofnvegum. Þá telur hún áhugavert að kanna afstöðu borgarbúa til slíkra áforma og segist sannfærð um að niðurstaðan myndi sýna mikla andstöðu.

Hildur gagnrýnir jafnframt óvissu um fjármögnun samgöngusáttmálans og segir ríkisstjórnina enn eiga eftir að skýra hvernig hún hyggist standa undir sínum hluta kostnaðarins. Hún bendir á að framlög til verkefnanna verði skert um 25 prósent á næsta ári.

Þrátt fyrir þetta segist hún ekki vilja hafna samgöngusáttmálanum í heild. Mikilvægt sé að ráðast í nauðsynlegar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu, en endurmeta þurfi forgangsröðun verkefna og fjármögnun þeirra.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅