Barn grafið lifandi í sólarhring: Faðirinn ákærður

Bandarískir lögreglumenn að störfum.

Bandarískir lögreglumenn að störfum. AFP/Charly Tribelleau

Ellefu mánaða dreng, sem faðir hans hafði numið á brott, var bjargað eftir að hann hafði verið grafinn lifandi í hundabúri, að lokinni umfangsmikilli leit í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum.

Faðir hans hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa grafið barnið, sögðu yfirvöld í gær.

Barnið, Koah Sharpe, fannst síðdegis á þriðjudag „milli heims og helju“ eftir að hafa að líkindum verið grafið í sólarhring, sagði Jay Koon, lögreglustjóri Lexington-sýslu, að því er ABC News greindi frá. 

Barnið var flutt á sjúkrahús og hefur síðan verið útskrifað í umsjá ættingja, að sögn yfirvalda, sem sögðu barnið „við góða heilsu“ og að búist væri við að það næði sér að fullu.

Drengurinn fannst vafinn í handklæði í búrinu, sem hafði verið grafið grunnt í mold úti í skógi, „grátandi, og það var gleðilegasti barnsgrátur sem nokkur hefur heyrt,“ sagði lögreglustjórinn á blaðamannafundi á þriðjudag.

„Guð er sannarlega góður,“ sagði Koon.

Skilinn eftir í umsjá föður síns

Yfirvöld hófu leit að Koah og föður hans, hinum 25 ára gamla Michael Comer, síðdegis á mánudag, að sögn lögregluembættis Lexington-sýslu.

Koah hafði verið skilinn eftir í umsjá föður síns á heimili föðurömmu sinnar á meðan hún skrapp frá, að sögn Koon. Annar umsjónaraðili var á leið í húsið en þegar viðkomandi kom á staðinn voru feðgarnir horfnir, sagði lögreglustjórinn.

Lögreglumenn í Lexington-sýslu fundu Comer seint á mánudagskvöld í grennd við Batesburg-Leesville, en Koah var hvergi að finna, að sögn yfirvalda.

Bandarískir lögreglumenn að störfum.

Bandarískir lögreglumenn að störfum. AFP/Charly Triballeau

Heyrðu grátur

Leitarhópur yfir 100 viðbragðsaðila hóf leit að barninu, að sögn Koon. Þegar leitað var nálægt húsi föður Comers síðdegis á þriðjudag fannst „nýlega rótuð“ mold um 45 metra inni í skóginum, sagði hann.

„Þegar þeir könnuðu svæðið, afmörkuðu það og byrjuðu að grafa heyrðist í litla Koah gráta,“ sagði lögreglustjórinn. „Eins og nærri má geta hófst þá kapphlaup, allir fóru niður til að reyna að ná honum upp.“

Út frá því sem rannsakendur komust að um ferðir föðurins er talið að barnið hafi verið grafið í sólarhring, sagði Koon. Lögreglustjórinn telur að handklæðið hafi átt þátt í að mynda „loftrými“.

„Vonandi, þar sem hann er aðeins ellefu mánaða, man hann lítið eftir þessu þegar hann eldist en á bara frábæra og hvetjandi sögu að segja,“ sagði Koon. 

Ákærður fyrir tilraun til manndráps

Comer fannst í útihúsi við hús í Batesburg á mánudagskvöld, að sögn Koon, sem sagði: „Hann hafði auðvitað ekki mikið að segja um hvar barnið væri á þeim tímapunkti.“

Comer var upphaflega handtekinn vegna innbrots, sagði Koon. Faðirinn er nú einnig ákærður fyrir tilraun til manndráps, ólögmæta háttsemi gagnvart barni og brot gegn forsjárrétti, að sögn lögregluembættisins í gær.

„Við viljum þakka öllum og einfaldlega fagna því í dag að ellefu mánaða gamalt barn er á lífi,“ sagði Koon.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅