Tveir látnir eftir að bygging hrundi í New York

Viðbragðsaðilar að störfum í Brooklyn.

Viðbragðsaðilar að störfum í Brooklyn. AFP/Kena Betancur

Tveir létust í gær og að minnsta kosti 17 aðrir slösuðust, þar á meðal börn, eftir að þriggja hæða bygging hrundi nálægt byggingarsvæði í New York, að sögn borgaryfirvalda.

Myndir frá vettvangi sýndu slökkviliðsmenn leita í rústum fyrir framan það sem virtist vera íbúðarhúsnæði þar sem veggirnir höfðu hrunið, svo sjá mátti inn í svefnherbergi og fataskáp.

Byggingin féll ofan í grunn á aðliggjandi lóð og nokkrir urðu fastir í rústunum. Slökkviliðsmenn unnu í margar klukkustundir að því að losa þá með aðstoð dróna, leitarhunda og keðjusaga.

Tveir eru látnir og 17 slasaðir.

Tveir eru látnir og 17 slasaðir. AFP/Kena Betancur

„Við vitum ekki hversu margir eru enn á hrunsvæðinu og þetta verður langvinn aðgerð,“ sagði Lillian Bonsignore, slökkviliðsstjóri FDNY, við fréttamenn á vettvangi í Flatbush í Brooklyn seint í gær.

Hún sagði að tveir hefðu látist, án þess að greina frá aldri þeirra, og að 17 aðrir hefðu slasast, þar af sjö börn. Fjórir eru alvarlega slasaðir.

Yfir 250 slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang, skrifaði FDNY á X og bætti við að orsök hrunsins væri til rannsóknar.

AFP/Michael M. Santiago

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, hrósaði viðbragðsaðilum fyrir störf þeirra og sagði að á vettvangi hefði þurft að fara um „ótryggt brak og hættuleg holrými undir yfirborðinu“.

„Ég vil biðja New York-búa um að gefa sér smástund til að biðja fyrir þeim sem létust í dag og öllum þeim sem syrgja þá,“ bætti hann við á blaðamannafundi.

AFP/Kena Betancur

Eitt vitni, sem aðeins var nefnt Anthony, sagði við PIX11 News að hann hefði heyrt fólk öskra og hávaða sem líktist „sprengju“ þegar byggingin hrundi.

Annað vitni, Melissa Orna, sagði við The New York Times: „Öll byggingin fór að titra og svo hrundi hún bara.“

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅