Missti stjórn á skapi sínu eftir að hafa verið tekinn á 189 kílómetra hraða

Ökumaður sem lögregla mældi á 189 kílómetra hraða á klukkustund í gærkvöldi eða í nótt sagðist hafa verið að prufukeyra bifreiðina. Maðurinn var handtekinn en hann veitti lögreglu mótspyrnu og reyndist síðar jákvæður fyrir fíkniefnum við munnvatnspróf.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Alls voru 56 mál skráð hjá lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun og sex einstaklingar voru í fangaklefum þegar dagbókin var tekin saman.

Streittist á móti handtöku

Ökumaðurinn var stöðvaður á vegarkafla þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Hann ók því 109 kílómetrum yfir leyfðum hámarkshraða.

Að sögn lögreglu varð maðurinn fljótlega mjög æstur og óútreiknanlegur eftir að hann var handtekinn og komið fyrir í lögreglubifreið. Hann neitaði að hlýða fyrirmælum lögreglumanna og streittist á móti þegar átti að handjárna hann. Beittu lögreglumenn því lögreglutökum til að ná stjórn á honum.

Á lögreglustöð gaf maðurinn munnvatnssýni sem reyndist jákvætt fyrir fíkniefnum. Hann var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins og á yfir höfði sér bráðabirgðasviptingu ökuréttar og sekt vegna nokkurra brota.

Réðst á ökumann og skemmdi bíl

Í öðru máli urðu lögreglumenn, sem voru við almennt umferðareftirlit, vitni að því þegar karlmaður réðst á ökumann bifreiðar og síðan á bifreiðina sjálfa með þeim afleiðingum að hún skemmdist.

Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi en hann var í verulega annarlegu ástandi vegna áfengis- og vímuefnaneyslu. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Lögregla hafði einnig afskipti af ölvuðum manni sem lá á bekk og hafði kastað af sér vatni. Maðurinn var ófær um að gæta eigin hagsmuna og ekki reyndist unnt að eiga við hann vitræn samskipti. Hann var því vistaður í fangaklefa.

Þá barst tilkynning um mjög ölvaðan mann sem stóð á miðri akbraut í Reykjavík. Hann reyndist samvinnuþýður þegar lögregla kom á vettvang og var honum ekið heim.

Fór húsavillt og barði á rangar dyr

Lögregla var jafnframt kölluð til vegna manns sem virtist vera í mjög annarlegu ástandi og barði á dyr íbúðarhúss. Þegar lögregla kannaði málið kom í ljós að maðurinn hafði einfaldlega farið húsavillt.

Hann hafði ætlað heim til sín en ruglast á tveimur keimlíkum húsum sem standa hlið við hlið.

Loks barst lögreglu tilkynning um að grænum leysigeisla væri beint inn um glugga í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Lögreglumenn fóru á vettvang en urðu ekki varir við neitt.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅