Flugfreyja afhjúpar lítt þekkta hluti sem þú getur beðið um í flugvél

Sille Rydell, þekkt sem Ferðast með SilleRydell á samfélagsmiðlum, hefur starfað sem flugfreyja í sex ár. Hún birtir fjölda flug- og ferðaráða á TikTok og Instagram til að hjálpa farþegum að fá betri upplifun. 

Á hverjum þriðjudegi birtir hún nýtt ráð sem fær þúsundir áhorfa. Í nýlegri færslu greindi Rydell frá nokkrum nauðsynjavörum um borð sem farþegar gera sér kannski ekki grein fyrir að þeir geti beðið um.

„Hlutir sem þú veist kannski ekki að þú getur beðið um í flugvél,“ deildi lista yfir nokkur algeng og lítt þekkt grunnatriði til að gera næstu ferð þína aðeins þægilegri.

Eitt sem hægt er að biðja um, en farþegar vita kannski ekki af, er poki af ís. Þeir sem eru með bólgna fætur eða höfuðverk geta spurt hvort þeir geti fengið sér poka af ís til að nota sem kælipoka.

Annað sem þú getur beðið um er plástrar og umbúðir. 

Flugþjónn getur einnig aðstoðað farþega við að komast út úr flugvélinni og að næsta hliði. Rydell segir betra að óska eftir slíkri aðstoð fyrir flug, en ef ekki þá geti flugþjónn aðstoðað farþega með því að tengja hann við flugvallarstarfsmann.

Í öðru myndbandi greinir Rydell frá að hægt sé að biðja um verkjalyf. Þar segir farþegi að hann hafi verið með „hræðilegan magaverk“ og að honum hefði verið gefið Tylenol til að lina óþægindin. Rydell hvatti fylgjendur sína til að biðja um hvaðeina sem þeir þyrftu, jafnvel þótt þeir teldu ekki líklegt að það væri til um borð. „Við höfum líklega eitthvað, bragð, einhver lyf, eitthvað sem getur hjálpað ykkur.“ 

Rydell sagði sumar vélar hafa dömubindi og/eða túrtappa fyrir þær sem þurfa.

Rydell sagði einnig að engir hlutir væru faldir í skúffum á salerninu, það væri því óþarfi að gramsa í þeim. Hún ráðleggur frekar að spyrja flugþjónn ef manni vantar eitthvað, ef það er ekki til í vélinni gæti verið að einhver starfsmaður geti aðstoðað.

Aðrir hlutir sem farþegar geta beðið um er heitt vatn ef farþeginn tók með sér tepoka, núðlupakka eða slíkt. Ælupokar eru einnig í boði og eins og íslenskir farþegar þekkja eru þeir oftast þegar í sætisvasanum.

Rydell segir að gott sé að skipuleggja ferðalagið og það sem maður þarf á að halda fyrirfram, 

Eyrnatappar fyrir þá sem þurfa aðeins meiri hvíld og ró, meira vatn og áfyllingar á vatnsflöskum, þvottaklútar og fleira voru líka á listanum yfir hluti sem hún sagði boðið upp á í mörgum flugvélum.

„Almennt séð, jafnvel þótt þér finnist þetta skrýtið eða vandræðalegt, þá höfum við líklega heyrt þetta áður og vitum líklega lausnina,“ sagði Rydell á TikTok.

„Ertu að ferðast einn með barn, þarft að komast á salernið eða líður þér illa? Láttu okkur bara halda á barninu. Við elskum það.

Láttu okkur vita ef þér líður illa. Við getum komið með sælupoka og vatn, oft fundið fyrir þig sæti nær salerninu og við munum fylgjast vel með þér,“ segir Rydell.

„Við getum aðstoðað ef þú færð kvíðakast. Hvort sem um er að ræða innilokunarkennd, kvíða eða ofsakvíðakast láttu okkur vita. Að tryggja öryggi þitt er mikilvægasti hluti starfsins okkar og þér er alltaf velkomið að koma og standa hjá okkur í eldhúsinu.“

Hverju er best að klæðast í flugi?

Rydell benti einnig á gagnleg ráð um hvernig væri gott að klæða sig fyrir flug og hverju ætti að sleppa. Rydell ráðleggur fólki að sleppa því að vera í töflum eða flip-flops; fætur bólgna, það er oft kalt í vélinni og ef að þú þarft að taka á sprett að hliðinu sé betra að vera í góðum skóm. 

Einnig ráðleggur hún að sleppa því að vera í þröngum gallabuxum. Einnig að sleppa stuttbuxum og stutterma skyrtum, „þú vilt aldrei láta bera húðina nálægt þessum sætum,“ skrifaði hún.

Hverju á að klæðast í staðinn: eitthvað þægilegt og laust og aukalög ef hitastigið breytist segir Rydell. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅