Tvö mjög óvænt nöfn sögð á blaði hjá United í janúar

Manchester United hefur bætt tveimur varnarmönnum úr ensku úrvalsdeildinni á óskalista sinn fyrir félagaskiptagluggann í janúar.

Samkvæmt Daily Mail hefur félagið áhuga á Nathan Collins, miðverði Brentford, og Calvin Bassey, varnarmanni Fulham.

Collins er 25 ára landsliðsmaður Írlands en Bassey er 26 ára og leikur með nígeríska landsliðinu.

United hefur átt í miklum vandræðum í varnarleiknum á tímabilinu og forráðamenn félagsins vilja skoða möguleika á að styrkja varnarlínuna.

Ekki liggur fyrir hvort félagið hafi þegar haft samband við Brentford eða Fulham vegna leikmannanna.

Báðir eru þó sagðir vera á meðal þeirra kosta sem United skoðar fyrir janúargluggann.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅