Sex drepnir í árás á Nasser-sjúkrahúsið
Palestínumenn reyna að slökkva eld í bíl í Gasaborg eftir árás Ísraela 2. nóvember. AFP/Omar Al-Qattaa
Sex voru drepnir og 20 særðust í árás Ísraela á Nasser-sjúkrahúsið á suðurhluta Gasasvæðisins, að sögn embættismanns almannavarna í morgun.
Ísraelski herinn staðfesti árásina og sagði að skotmarkið hefði verið „háttsettur hryðjuverkamaður Hamas og fleiri hryðjuverkamenn úr hernaðararmi Hamas“ sem hefðu athafnað sig frá sjúkrahúsinu.
Almannavarnir Gasasvæðisins, björgunarstofnun sem starfar undir stjórn Hamas, sögðu að lík hinna látnu og „fleiri en“ 20 sem særðust hefðu verið sótt í byggingu innan sjúkrahússvæðisins.
„Tala látinna eftir ísraelsku árásina inni í Nasser-sjúkrahússamstæðunni, vestur af Khan Younis á suðurhluta Gasa, er komin upp í sex,“ sagði Mahmoud Bassal, talsmaður almannavarna, í samtali við AFP.
Nasser-sjúkrahúsið staðfesti dauðsföllin sex í yfirlýsingu.
Ísraelski herinn sagðist hafa gert „loftárás til að eyða þeirri ógn sem af þeim stafaði, eftir að hryðjuverkasamtökin Hamas höfðu komið sér fyrir innan sjúkrahússvæðisins og notað það sem stjórnstöð“.
Rúmt ár síðan vopnahlé hófst
Ísrael og Hamas hafa sakað hvort annað um að brjóta vopnahléið sem tók gildi í október 2025, eftir tveggja ára stríð sem hófst í kjölfar árásar af fordæmalausri stærðargráðu sem palestínska íslamistahreyfingin gerði á Ísrael 7. október 2023.
Á þriðjudag drápu ísraelskar hersveitir sjö manns, þar á meðal 13 ára dreng, á Gasasvæðinu, að sögn neyðarþjónustu á staðnum, en ísraelski herinn sagðist hafa beint spjótum sínum að hermönnum.
Palestínskur drengur fyrir framan húsarústir eftir að Ísraelar gerðu árás á Jabalia á norðurhluta Gasasvæðisins 30. október. AFP/Bashar Taleb
Fleiri en 1.590 Palestínumenn hafa verið drepnir frá því að vopnahléið hófst, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem starfar undir stjórn Hamas, og Sameinuðu þjóðirnar telja tölur þess áreiðanlegar.
Á sama tímabili hefur ísraelski herinn greint frá því að sjö hermenn hafi fallið, auk eins óbreytts verktaka.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

