Tíu ára drengur skaut sextán ára stúlku til bana – Móðirin sögð hafa kallað: „Sæktu byssuna“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 07:00

Til harðra átaka kom áður en harmleikurinn átti sér stað.

Tíu ára drengur skaut sextán ára nágrannastúlku sína til bana í Albuquerque í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum eftir að deilur vegna háværrar tónlistar fóru úr böndunum á hrekkjavökunni.

Móðir drengsins hefur verið ákærð fyrir morð og fleiri brot, en hún er meðal annars sökuð um að hafa hvatt son sinn til að sækja skotvopn á meðan átökin stóðu yfir.

New York Post greinir frá málinu og vísar til umfjöllunar sjónvarpsstöðvarinnar KRQE.

Atvikið átti sér stað síðdegis 31. október þegar hin fertuga Elaina Gomez-Villeda og sonur hennar voru að koma heim af hrekkjavökuviðburði. Gomez-Villeda fór fram á að nágrannar þeirra lækkuðu í tónlistinni, en í kjölfarið brutust út slagsmál milli fjölskyldnanna.

Gomez-Villeda og nágrannakona hennar slógust á meðan tíu ára sonur hennar og sextán ára dóttir nágrannakonunnar, Keinerlein Rangel, tókust einnig á.

„Hann ætlar að skjóta ykkur“

Samkvæmt framburði Chase Jewell, rannsóknarlögreglumanns í Albuquerque, heyrist Gomez-Villeda kalla: „sæktu byssuna“ á upptöku úr öryggismyndavél. Hún er jafnframt sögð hafa varað nágrannana við og sagt að sonur hennar ætlaði að skjóta þá.

Drengurinn hljóp inn í íbúð fjölskyldunnar og kom skömmu síðar aftur út með skammbyssu. Hann hleypti fyrst af skoti sem geigaði en skaut síðan öðru skoti sem hæfði Keinerlein Rangel með þeim afleiðingum að hún lést.

Móðirin og sonur hennar flúðu inn í íbúðina, læstu að sér og hringdu í neyðarlínuna.

Á meðan móðirin var enn í símanum reyndi faðir hinnar látnu að brjótast inn í íbúðina og braut meðal annars rúðu. Gomez-Villeda greip þá sjálf til skotvopns og skaut í átt að manninum, að því er fram kemur í gögnum lögreglu.

„Ég hélt að við myndum deyja,“ sagði hún síðar við lögreglu.

Dómarinn undrandi á drengnum

Gomez-Villeda kom fyrir dómara síðastliðinn föstudag. Hún hefur meðal annars verið ákærð fyrir morð, samsæri um morð, brot gegn barni og að hafa með gáleysi gert skotvopn aðgengilegt ólögráða einstaklingi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅