Frá Real Madrid til Arsenal í janúar?
Arsenal hefur áhuga á að fá brasilíska framherjann Endrick frá Real Madrid þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Þetta kemur fram í frétt talkSPORT.
Endrick, sem er tvítugur, er talinn spennandi kostur fyrir Lundúnafélagið sem skoðar möguleikann á að styrkja sóknarlínuna.
Andrea Berta, íþróttastjóri Arsenal, gæti gegnt lykilhlutverki í mögulegum félagaskiptum.
Berta er sagður vera í góðu sambandi við umboðsskrifstofuna sem fer með málefni Brasilíumannsins og gæti nýtt þau tengsl til að greiða fyrir viðræðum.
Ekki liggur fyrir hvort Arsenal hyggist reyna að kaupa Endrick eða fá hann á láni.
Þá er óljóst hvort Real Madrid sé tilbúið að leyfa honum að fara.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗