Stundum má byrja daginn á sætum nótum
Nú þegar styttist í jólin er um að gera að leyfa sér eitthvað gómsætt, jafnvel strax í morgunmatnum. Þessi hafragrautur með súkkulaði og heslihnetum er tilvalinn til þess. Hann minnir helst á eftirrétt en er líka prótín- og trefjaríkur.
Á samfélagsmiðlasíðunni Easy Dessert Daily má finna uppskrift að næturhafragraut innblásnum af Ferrero Rocher-molum. Grauturinn er svo skreyttur með einum konfektmola sem er tilvalið að njóta með morgunbollanum.
Myndskeið og uppskrift hér að neðan:
Hafragrautur sem minnir á jólin
Ferrero Rocher-næturhafragrautur
Grauturinn
- 40 g haframjöl
- 80 ml mjólk að eigin vali
- 20 g vanilluprótín
- 1 tsk. kakóduft
- 1 tsk. chiafræ
- 1 tsk. hörfræ
- ½ msk. hlynsýróp eða önnur sæta
Heslihnetukrem
- 1½ msk. jógúrt
- ½ msk. Nutella eða önnur súkkulaði- og heslihnetusmyrja
Súkkulaðihjúpur
- 1 væn lúka af grófmuldum heslihnetum
- 10 g dökkt súkkulaði
- 1 tsk. kókosolía
Aðferð
- Blandið haframjöli, mjólk, prótíndufti, kakódufti, chiafræjum, hörfræjum og sætu saman í krukku eða skál. Ef blandan er of þykk má bæta við örlítilli mjólk.
- Hrærið jógúrt og súkkulaði- og heslihnetusmjör saman þar til kremið er slétt. Dreifið jafnt yfir hafrablönduna.
- Stráið muldum heslihnetum yfir jógúrtlagið.
- Bræðið súkkulaðið og kókosolíuna varlega saman og hrærið þar til blandan er slétt. Látið kólna lítillega en gætið þess að hún sé enn fljótandi. Dreifið henni í þunnu lagi yfir heslihneturnar.
- Setjið lok á eða hyljið og kælið í að minnsta kosti eina klukkustund, helst yfir nótt svo hafrarnir nái að mýkjast vel.
- Setjið Ferrero Rocher-mola á toppinn sem punktinn yfir i-ið.
- Reynið að standast freistinguna og geyma grautinn í ísskápnum til næsta morguns. Brjótið þá súkkulaðihjúpinn með skeið og njótið. Það er ekki amalegt að byrja daginn svona!
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗