Ók á 189 km hraða: Sagðist vera að prufukeyra

Lögreglan sinnti margvíslegum verkefnum á vaktinni.

Lögreglan sinnti margvíslegum verkefnum á vaktinni. mbl.is/Ólafur Árdal

Lögreglan sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ mældi ökumann á 189 km hraða á akbraut þar sem mesti leyfði hámarkshraði er 80 km/klst.

Ökumaðurinn var handtekinn fyrir hraðakstur en hann gaf þá skýringu að hann væri að prufukeyra bifreiðina.

Þegar komið var í lögreglubifreiðina varð ökumaðurinn fljótt óútreiknanlegur og mjög æstur. Hann fylgdi ekki fyrirmælum og þegar það átti að handjárna hann streittist hann á móti svo það þurfti að taka hann í lögreglutök. Hann hélt mótspyrnu sinni til streitu þangað til hann var kominn í handjárn.

Á lögreglustöðinni gaf ökumaðurinn munnvatnssýni sem sýndi jákvæða niðurstöðu fyrir fíkniefnum. Úr varð að hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Ökumaðurinn á yfir höfði sér bráðabirgðasviptingu ökuréttar ásamt sekt vegna nokkurra brota, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.

Réðst á ökumann og skemmdi bifreið hans

Við almennt umferðareftirlit lögreglunnar á Hverfisgötu sáu lögreglumenn mann ráðast að ökumanni í bifreið og síðan skemma bifreiðina. Hann var handtekinn á vettvangi. Maðurinn var í verulega annarlegu ástandi sökum ölvunar og vímuefnanotkunar. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Ruglaðist á húsum

Lögreglunni á Hverfisgötu var tilkynnt um mann sem virkaði í mjög annarlegu ástandi í garði húss að berja á dyr. Maðurinn reyndist hafa farið húsavillt þar sem hann hafði ætlað heim til sín í húsið við hliðina á en húsin eru keimlík.

Sama lögreglustöð fékk tilkynningu um ölvaðan mann liggjandi á bekk. Ekki var hægt að eiga vitræn samskipti við manninn og var hann vistaður í klefa sökum ástands.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Grænn leysigeisli inn um glugga 

Tilkynnt var um annan mann sem stóð á akbraut í Reykjavík. Lögreglan fann manninn, sem reyndist mjög ölvaður en samvinnuþýður. Honum var ekið til síns heima.

Lögreglunni var tilkynnt um að verið væri að lýsa með grænum leysigeisla inn um glugga á fjölbýlishúsi í Kópavogi. Lögreglan sá engan vera að lýsa nærri vettvangi.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅