Stundum má byrja daginn á sætum nótum

Hversu girnilegur er þessi morgunverður? Samsett mynd

Nú þegar styttist í jólin er um að gera að leyfa sér eitthvað gómsætt, jafnvel strax í morgunmatnum. Þessi hafragrautur með súkkulaði og heslihnetum er tilvalinn til þess. Hann minnir helst á eftirrétt en er líka prótín- og trefjaríkur.

Á samfélagsmiðlasíðunni Easy Dessert Daily má finna uppskrift að næturhafragraut innblásnum af Ferrero Rocher-molum. Grauturinn er svo skreyttur með einum konfektmola sem er tilvalið að njóta með morgunbollanum.

Myndskeið og uppskrift hér að neðan:

Hafragrautur sem minnir á jólin

Ferrero Rocher-næturhafragrautur 

Grauturinn

  • 40 g haframjöl
  • 80 ml mjólk að eigin vali
  • 20 g vanilluprótín
  • 1 tsk. kakóduft
  • 1 tsk. chiafræ
  • 1 tsk. hörfræ
  • ½  msk. hlynsýróp eða önnur sæta

Heslihnetukrem

  • 1½ msk. jógúrt 
  • ½  msk. Nutella eða önnur súkkulaði- og heslihnetusmyrja 

Súkkulaðihjúpur

  • 1 væn lúka af grófmuldum heslihnetum
  • 10 g dökkt súkkulaði
  • 1 tsk. kókosolía

Aðferð

  1. Blandið haframjöli, mjólk, prótíndufti, kakódufti, chiafræjum, hörfræjum og sætu saman í krukku eða skál. Ef blandan er of þykk má bæta við örlítilli mjólk.
  2. Hrærið jógúrt og súkkulaði- og heslihnetusmjör saman þar til kremið er slétt. Dreifið jafnt yfir hafrablönduna.
  3. Stráið muldum heslihnetum yfir jógúrtlagið.
  4. Bræðið súkkulaðið og kókosolíuna varlega saman og hrærið þar til blandan er slétt. Látið kólna lítillega en gætið þess að hún sé enn fljótandi. Dreifið henni í þunnu lagi yfir heslihneturnar.
  5. Setjið lok á eða hyljið og kælið í að minnsta kosti eina klukkustund, helst yfir nótt svo hafrarnir nái að mýkjast vel.
  6. Setjið Ferrero Rocher-mola á toppinn sem punktinn yfir i-ið.
  7. Reynið að standast freistinguna og geyma grautinn í ísskápnum til næsta morguns. Brjótið þá súkkulaðihjúpinn með skeið og njótið. Það er ekki amalegt að byrja daginn svona!

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅