Depp tekur á sig mikla launalækkun

Johnny Depp á heimsfrumsýningu Ebenezer í byrjun nóvember. Fyrir hlutverkið fær hann brot af þeim launum sem hann fékk á hátindi ferilsins. AFP/Adrian Dennis

Leikarinn Johnny Depp fær töluvert minna í sinn hlut fyrir að leika nirfilinn Ebenezer Scrooge en hann fékk fyrir stórmyndir á hátindi ferilsins.

Samkvæmt Variety nema launin fyrir aðalhlutverkið í kvikmyndinni Ebenezer fimm milljónum bandaríkjadala, jafnvirði um 612 milljóna króna.

Myndin er ný útfærsla á Jólasögu Charles Dickens og markar endurkomu hins 63 ára gamla leikara í stórt hlutverk á vegum bandarísks kvikmyndavers.

Fékk full laun fyrir eina senu

Til samanburðar fékk Depp 16 milljónir dala, um tvo milljarða króna á núverandi gengi, fyrir þriðju Fantastic Beasts-myndina. Hann hafði aðeins tekið upp eina senu þegar hann var látinn víkja en samningur hans tryggði honum engu að síður full laun.

Hæstu tekjur hans af einu hlutverki eru þó sagðar hafa verið um 90 milljónir dala, jafnvirði um ellefu milljarða króna, fyrir túlkun hans á Jack Sparrow í Pirates of the Caribbean: Dead Men Tell No Tales árið 2017. Þar var hlutdeild í hagnaði myndarinnar meðtalin.

Depp hefur sjálfur viðurkennt að launin fyrir sjóræningjamyndirnar hafi verið úr hófi. Í viðtali við Vanity Fair árið 2011 sagðist hann þó þiggja fjármunina með framtíð barna sinna í huga.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅