Snjókoma fyrir vestan með morgninum
Það fer að snjóa á vestanverðu landinu með morgninum og síðar einnig í öðrum landshlutum.
Búist er við hvassviðri og snjókomu síðdegis á morgun fyrir norðan og annað kvöld er útlit fyrir norðan stórhríð á Norðurlandi, að því er kemur fram í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Veðurspáin á landinu er þannig að það verða sunnan og suðvestan 5 til 13 metrar á sekúndu og fer að snjóa vestantil með morgninum, en slydda eða rigning á láglendi síðdegis og hiti á bilinu 0 til 5 stig.
Það verður hægari vindur á austanverðu landinu, þurrt og kalt, en dálítil snjókoma þar seinnipartinn og dregur úr frosti.
Það verður norðlæg átt, víða 8-15 m/s og dálítil snjókoma fyrir hádegi á morgun, en úrkomulítið sunnan- og austanlands. Gengur í norðvestan og vestan 10-18 m/s með snjókomu fyrir norðan síðdegis á morgun. Norðlægari 18-25 m/s með snjókomu annað kvöld, hvassast á Norðurlandi, en mun hægari og úrkomulítið suðaustantil. Kólnandi veður.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗