Námsleiðin verði ekki rekstrarhæf

Íslensk miðaldafræði eru kennd á ensku við Háskóla Íslands.

Íslensk miðaldafræði eru kennd á ensku við Háskóla Íslands. mbl.is/Hanna

Framtíð alþjóðlegs náms í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands er í hættu vegna hækkaðra skólagjalda fyrir nemendur frá löndum utan EES.

Þetta segir Haraldur Bernharðsson, forseti hugvísindasviðs og prófessor í íslenskum miðaldafræðum, sem lýsir yfir þungum áhyggjum við Morgunblaðið.

Hann óttast að námið muni falla niður ef háskólinn sér af þremur fjórðu hlutum nemendahópsins en 73% koma frá löndum utan EES, flestir frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada, sem þurfa að borga tæpar fimm milljónir króna fyrir 120 eininga framhaldsnám. Haraldur gagnrýnir litla sem enga upplýsingagjöf frá stjórnvöldum síðan áformin voru kynnt og segir háskólann hafa beðið mikinn álitshnekki. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅