Aðeins 17% eru íslensk tónlist
Spacestation er ein heitasta sveit landsins og fékk góðar viðtökur á Iceland Airwaves-hátíðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Þetta er greinilega vandamál en það eru tækifæri til að brúa þetta bil. Við gerum okkur grein fyrir því að Spotify er ekki að fara að hreyfa við algóriþma sínum fyrir okkur en það er samt ábyrgðarhluti að þetta verði ekki of einsleit súpa,“ segir María Rut Reynisdóttir framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar.
Íslensk tónlist á undir högg að sækja í heimi þar sem flestir hlusta á tónlist á streymisveitum. Í nýrri könnun sem gerð var í samstarfi við Félagsvísindastofnun kemur í ljós að 79% Íslendinga kveðast vera mjög stolt af íslenskri tónlist en aðeins 17% af þeirri tónlist sem þeir streyma eru íslensk. Um 44% segjast hins vegar vilja hlusta meira á íslenska tónlist. Til stendur að ráðast gegn þessu vandamáli og reyna að auka veg íslenskrar tónlistar á næstunni.
Í pallborðsumræðum á nýafstaðinni Iceland Airwaves-hátíð kom í ljós að í Danmörku hefur dönsk tónlist, sungin á dönsku, verið í mikilli sókn síðustu ár og hlutfall hennar er nú 36% af allri hlustun. Í fyrra voru 18 af 20 vinsælustu lögum ársins sungin á dönsku.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗