Valgerður selur íbúð í Hafnarfirði

Valgerður Halldórsdóttir fjölskyldufræðingur hefur sett íbúð sína í Hafnarfirði á sölu. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon

Valgerður Halldórsdóttir, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í stjúptengslum, hefur sett fallega íbúð sína við Hringbraut 2b í Hafnarfirði á sölu. Íbúðin er á þriðju hæð í lyftuhúsi sem reist var árið 2000. Eignin er skráð 105,4 fermetrar og er ásett verð 94,7 milljónir króna.

Samkvæmt fasteignaauglýsingu var íbúðin mikið endurnýjuð árið 2025. Þá voru eldhús, gólfefni og hurðir endurnýjuð auk þess sem baðherbergið var tekið að hluta í gegn.

Möguleiki á þriðja svefnherbergi

Eldhús og stofa eru í opnu rými og er L-laga innrétting og eyja í eldhúsinu. Harðparket er á stofu, svefnherbergjum og forstofu.

Svefnherbergin eru tvö en voru áður þrjú. Eitt þeirra var sameinað stofunni og samkvæmt auglýsingunni er auðvelt að breyta skipulaginu aftur. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar eru baðkar, innrétting og handklæðaofn.

Tvennar svalir og gott útsýni

Tvennar svalir tilheyra íbúðinni, þar af aðrar yfirbyggðar, og er gott útsýni frá eigninni.

Íbúðinni fylgja merkt bílastæði í bílakjallara og sérgeymsla sem er 8,9 fermetrar og innifalin í skráðri stærð. Í sameign er einnig hjóla- og vagnageymsla. Stutt er í miðbæ Hafnarfjarðar, sundlaug og heilsugæslu.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Hringbraut 2b

Rúmgóð stofa er eitt af því sem einkennir íbúðina.

Rúmgóð stofa er eitt af því sem einkennir íbúðina. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Eldhúsið er glæsilegt eftir endurnýjun í fyrra.

Eldhúsið er glæsilegt eftir endurnýjun í fyrra. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Listaverk njóta sín vel á veggjum.

Listaverk njóta sín vel á veggjum. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Glæsilegt alrými þar sem eldhús og stofa tengjast.

Glæsilegt alrými þar sem eldhús og stofa tengjast. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Hlýlegt svefnherbergi með harðparketi á gólfi.

Hlýlegt svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Stór gluggi setur svip á bjart og fallegt anddyrið.

Stór gluggi setur svip á bjart og fallegt anddyrið. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Yfirbyggðar svalir eru skemmtileg viðbót við íbúðina.

Yfirbyggðar svalir eru skemmtileg viðbót við íbúðina. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Frá íbúðinni er gott útsýni.

Frá íbúðinni er gott útsýni. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅