Rússar heita fullum stuðningi

Aleksandr Bolshunov.

Aleksandr Bolshunov. Ljósmynd/Wikipedia.org

Rússneska skíðasambandið hefur boðað til fundar með skíðagöngufólki sem hefur lent í vandræðum með umsóknir sínar um að fá að keppa undir hlutlausum fána hjá Alþjóðaskíðasambandinu (FIS).

FIS hefur opnað á þátttöku rússneskra og hvítrússneskra keppenda á heimsbikarmótum í vetur undir hlutlausum fána.

Aleksandr Bolshunov, ein fremsta skíðagöngustjarna Rússlands, hefur enn ekki fengið samþykki FIS fyrir þátttöku. Rússneska fréttastofan RIA Novosti greindi frá því að umsókn hans hefði verið hafnað, en það hefur ekki fengist staðfest.

Rússneski ólympíumeistarinn Natalía Terentjeva er þó í hópi 35 rússneskra skíðagöngumanna sem hafa fengið samþykki, þótt kröfur um keppnisrétt og vegabréfsáritanir gildi enn.

Dmitry Svishchev, forseti rússneska skíða- og snjóbrettasambandsins, staðfesti einnig í viðtali við rússneska fjölmiðla að sambandið hefði fundað með íþróttafólki sem FIS hefði gert athugasemdir við í umsóknarferlinu.

Hann sagði sambandið vinna að því að fá umsóknirnar samþykktar og myndi veita keppendunum fullan stuðning, bæði lögfræðilegan og fjárhagslegan, ef á rétti þeirra til þátttöku yrði brotið.

Svishchev staðfesti jafnframt að umsóknum nokkurra rússneskra skíðagöngumanna hefði verið hafnað, en vildi ekki nefna nöfn þeirra.

Bolshunov og Aleksandr Terentjev eru meðal þeirra sem hafa ekki enn fengið leyfi til að keppa. Búist er við að Bolshunov áfrýi til Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS) verði umsókn hans endanlega hafnað.

Andstaða á Norðurlöndunum

Endurkoma Rússa hefur vakið talsverða athygli, meðal annars vegna andstöðu við þátttöku þeirra í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Heimsbikarmótaröðin í skíðagöngu hefst í Ruka í Finnlandi 27. nóvember.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅