Valgerður selur íbúð í Hafnarfirði
Valgerður Halldórsdóttir fjölskyldufræðingur hefur sett íbúð sína í Hafnarfirði á sölu. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon
Valgerður Halldórsdóttir, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í stjúptengslum, hefur sett fallega íbúð sína við Hringbraut 2b í Hafnarfirði á sölu. Íbúðin er á þriðju hæð í lyftuhúsi sem reist var árið 2000. Eignin er skráð 105,4 fermetrar og er ásett verð 94,7 milljónir króna.
Samkvæmt fasteignaauglýsingu var íbúðin mikið endurnýjuð árið 2025. Þá voru eldhús, gólfefni og hurðir endurnýjuð auk þess sem baðherbergið var tekið að hluta í gegn.
Möguleiki á þriðja svefnherbergi
Eldhús og stofa eru í opnu rými og er L-laga innrétting og eyja í eldhúsinu. Harðparket er á stofu, svefnherbergjum og forstofu.
Svefnherbergin eru tvö en voru áður þrjú. Eitt þeirra var sameinað stofunni og samkvæmt auglýsingunni er auðvelt að breyta skipulaginu aftur. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar eru baðkar, innrétting og handklæðaofn.
Tvennar svalir og gott útsýni
Tvennar svalir tilheyra íbúðinni, þar af aðrar yfirbyggðar, og er gott útsýni frá eigninni.
Íbúðinni fylgja merkt bílastæði í bílakjallara og sérgeymsla sem er 8,9 fermetrar og innifalin í skráðri stærð. Í sameign er einnig hjóla- og vagnageymsla. Stutt er í miðbæ Hafnarfjarðar, sundlaug og heilsugæslu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







