Engin tollhlið verði á stofnvegunum
„Við höfum verið alveg skýr með það, bæði á opinberum vettvangi og á fundum okkar með ráðherrum, að við munum ekki sætta okkur við að sett verði upp tollhlið fyrir almenna umferð á gömlum stofnvegum í Reykjavík. Við erum hins vegar reiðubúin til að fjármagna t.a.m. ný jarðgöng eins og Miklubrautargöng eða Sundabraut eða sambærileg verkefni með veggjöldum í einkaframkvæmd, þar sem fólk á þá jafnframt kost á annarri gjaldfrjálsri leið, en getur flýtt sinni för með því að fara um þessar nýju leiðir gegn gjaldi,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið.
Í blaðinu á þriðjudag lýsti Ari Edwald borgarfulltrúi Miðflokksins áhyggjum yfir mögulegum veggjöldum á stofnvegum í borginni til að fjármagna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins að hluta. Lagði hann til að íbúar kysu um málið. Hvort kosning um veggjöld kæmi til greina segir Hildur að ætli ríkið sér eitthvað slíkt muni borgin ekki láta það yfir sig ganga.
„Við munum sýna mikla mótspyrnu ef ríkið ætlar sér eitthvað slíkt og getum jafnvel beitt skipulagsvaldinu í þeim efnum. Ég held að það væri mjög fróðlegt að efna til skoðanakönnunar fljótlega meðal íbúa,“ segir hún.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗