Þorsteinn Pálsson skrifar: Málefnalínur skerpast á miðju kjörtímabili
Kjörtímabilið er því sem næst hálfnað. Á þeim tímapunkti getur verið áhugavert að rýna í stöðuna á pólitíska taflborðinu og velta upp spurningum:
- Hafa marktækar breytingar orðið á fylgi flokka í könnunum?
- Hafa orðið málefnalegar breytingar, sem ætla má að hafi áhrif til frambúðar?
- Má lesa úr könnunum á fylgi og mati á breyttri málefnastöðu hvort líklegt sé að kjósendur fái í næstu kosningum skýrt val um tvenns konar stjórnarmynstur?
Jöfn staða
Í heild hafa stjórnarandstöðuflokkarnir þrír aðeins bætt stöðu sína frá kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn hafa unnið á en Framsókn dalað lítið eitt.
Að sama skapi hafa stjórnarflokkarnir í heild dalað lítið eitt. Flokkur fólksins hefur tapað verulegu fylgi. Viðreisn þó nokkru. Aftur á móti hefur Samfylkingin stóraukið fylgi sitt og aukið forystuna gagnvart Sjálfstæðisflokknum.
Þegar horft er til grannlandanna hafa ríkisstjórnir yfirleitt verið í lakari stöðu á miðju kjörtímabili. Í því ljósi er staða ríkisstjórnarinnar nokkuð athyglisverð á þessum tímapunkti.
Misheppnaðar tilraunir atvinnulífsins til að fella ríkisstjórnina
Staðan er líka áhugaverð þegar horft er til þess að atvinnulífið hefur tvö ár í röð varið meiri fjármunum en nokkru sinni í pólitísku stríði gegn ríkisstjórn landsins.
Fyrst í baráttunni gegn breytingu á veiðigjöldunum, sem snerist rækilega í andhverfu sína. Og svo fyrir nei-hreyfinguna, sem vann þjóðaratkvæðagreiðsluna án þess að veikja fylgi stjórnarflokkanna.
Helsti hvatinn að stuðningi atvinnulífsins við nei-hreyfinguna var trúin á að með því móti væri unnt að knésetja Viðreisn og koma ríkisstjórninni frá rétt eins og ætlunin var í andstöðunni við veiðigjöldin.
Formaður Sjálfstæðisflokksins endurómaði þessa trú í kjölfar þjóðaratkvæðisins með þrálátum yfirlýsingum um að ríkisstjórnin myndi falla á næstu dögum. Það gekk ekki eftir. Og ekkert bendir til að slíkir dagdraumar rætist.
Frjálslynd velferðarstefna
Málefnalegur styrkur ríkisstjórnarinnar hefur falist í því að hún hefur til þessa haldið stöðu sinni sem frjálslynd breytingastjórn.
- Skýr stefnubreyting í ríkisfjármálum hefur staðfest meiri ábyrgð við stjórn efnahagsmálanna.
- Veiðigjaldabreytingin sýndi umsnúning frá sérhagsmunum til almannahagsmuna.
- Umtalsverð styrking velferðarkerfisins, án þess að skattar hafi orðið hærra hlutfall af þjóðarframleiðslu, hefur verið skýr vísbending um mikilvægt jafnvægi milli frjálslyndis í þágu atvinnulífsins og velferðar sem áður var vanrækt.
- Afgerandi stefnubreyting í orkumálum staðfestir nýja sókn til verðmætasköpunar eftir langt tímabil stöðnunar.
- Lausatökum í innflytjendamálum og löggæslu hefur verið breytt í ábyrga og skýra stefnu.
- Með þjóðaratkvæðagreiðslunni vildi ríkisstjórnin sýna vilja sinn til að tryggja betur en áður aukið öryggi í viðskiptum á grundvelli frjálsra viðskipta í samstarfi við þær þjóðir sem byggja á sömu gildum. Nú blasir hins vegar við að finna þarf þessu markmiði nýjan farveg því vandamálin, sem fylgja því að eiga ekki bandamenn í heimstollastríði, voru ekki kosin í burtu.
Frá því stjórnin var mynduð hafa þessi meginatriði stjórnarstefnunnar ekki breyst.
Ysta hægrið og bandarísk velferðarstefna
Á hinn bóginn hafa orðið mun meiri málefnabreytingar á væng stjórnarandstöðunnar.
Miðflokkurinn hefur á þessum tveimur árum haldið áfram að þróast í harðan hægri þjóðernisflokk, sem byggir alfarið á hugmyndafræði sambærilegra flokka í Evrópu og MAGA-hreyfingarinnar i Bandaríkjunum.
Ný forysta í Sjálfstæðisflokknum hefur tekið sér málefnalega stöðu fast við hliðina á Miðflokknum til að verjast frekara fylgistapi. Framsókn virðist aftur á móti vera að tapa stöðu sinni á miðjunni með því að leika sama leikinn.
Tillögur flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokksins frá því í vor boða mesta niðurskurð á velferðarkerfinu í sögunni og eru um leið ávísun á nýja verðbólguholskeflu. Með þessum tillögum hverfur flokkurinn endanlega frá þeirri breiðu skírskotun sem hann hafði lengst af.
Í utanríkismálum ætla stjórnarandstöðuflokkarnir að sveigja frá rótgrónu samstarfi við bandalagsþjóðir í Evrópu um sameiginlegan markað og fríverslun og leita skjóls í tollmúrastefnu Trump-stjórnarinnar.
Þetta er grundvallarbreyting á stefnu Íslands, sem mun veikja til muna samkeppnisstöðu landsins og pólitískt öryggi til frambúðar.
Möguleiki á tveimur málefnablokkum í næstu kosningum
Svo virðist því sem málefnalega gæti verið að myndast lína milli tveggja blokka þótt hún liggi annars staðar en á hinum Norðurlöndum.
- Annars vegar er frjálslynd umbreytingastefna núverandi stjórnarflokka, sem vilja styrkja stöðu landsins í samstarfi við lýðræðisþjóðir og þær þjóðir sem byggja a fríverslun og vestrænum gildum, taka almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni og standa vörð um velferðarkerfið.
- Hins vegar er ný hægri popúlísk þjóðernisstefna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja sem miðar að því að veikja samstarfið við Evrópu og færa Ísland undir viðskiptahindranastefnu Bandaríkjanna samhliða gífurlegum niðurskurði á velferðarkerfinu, hallarekstri á ríkissjóði, nýjum verðbólguþrýstingi og varðstöðu um sérhagsmuni.
Þessar málefnalínur hafa skerpst.
Ýmislegt getur vitaskuld breytt þessari mynd. Til að mynda ef vinstri flokkarnir þrír, sem hafa verið utan þings, fengju kjörna þingmenn.
Þegar nær dregur kosningum verður aftur á móti fróðlegt að sjá hvort þingflokkarnir gefa kjósendum val milli þessara tveggja skýru kosta.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗