Hlíðaskóli og Norðlingaskóli í úrslit Skrekks
Atriði Hlíðaskóla og Norðlingaskóla komust í kvöld áfram í úrslit Skrekks, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík.
Þriðja og síðasta undanúrslitakvöld Skrekks fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Áður höfðu Árbæjarskóli, Breiðholtsskóli, Klébergsskóli og Langholtsskóli tryggt sér farmiða í úrslitin. Þá munu tveir skólar til viðbótar keppa til úrslita sem óvænt atriði og verða þau kynnt á morgun.
Tjáning og svipting á réttindum kvenna
Atriðið Heimsendir frá Hlíðaskóla fjallar um að tjá sig áður en það er of seint og að það er í lagi að vera hræddur.
Atriðið Frjálsari í gær frá Norðlingaskóla fjallar um sviptingu á réttindum kvenna og er samið til heiðurs konum um víðan heim sem börðust fyrir réttindum kvenna.
Öll atriðin má sjá á vef UngRÚV.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
