Sögð undirbúa brottrekstur Huangs
Erlent | AFP | 11.11.2026 | 23:40
Stjórn tæknirisans Nvidia er sögð undirbúa brottrekstur Jensen Huang, meðstofnanda og forstjóra fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal (WSJ).
Greint var frá því í síðasta mánuði að Huang hefði stofnað til náins sambands við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr.
Funda strax í dag
Samkvæmt heimildum WSJ hyggst stjórn tæknirisans funda strax í dag um framtíð Huangs en hlutabréf í Nvidia hafa hrunið undanfarna daga.
Þá hafa hluthafar fyrirtækisins höfðað hópmálsókn gegn Huang og fyrirtækinu sjálfu. Saka þeir Huang og fyrirtækið um að hafa villt um fyrir sér vegna framhjáhaldsins.
Þá hefur New York Times greint frá því að Huang hafi einnig átt í öðru ástarsambandi utan hjónabands við undirmann sinn. Greina þeir frá því að myndbandsupptökur sýni Huang láta blíðlega við Kimberly Powell sem starfar sem aðstoðarforstjóri heilbrigðissviðs Nvidia.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗