Sögð undirbúa brottrekstur Huangs

Erlent | AFP | 11.11.2026 | 23:40

Útlitið er ekki bjart fyrir Jensen Huans forstjóra Nvidia.

Útlitið er ekki bjart fyrir Jensen Huans forstjóra Nvidia. AFP

Stjórn tæknirisans Nvidia er sögð undirbúa brottrekstur Jensen Huang, meðstofnanda og forstjóra fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal (WSJ).

Greint var frá því í síðasta mánuði að Huang hefði stofnað til náins sambands við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr. 

Funda strax í dag

Samkvæmt heimildum WSJ hyggst stjórn tæknirisans funda strax í dag um framtíð Huangs en hlutabréf í Nvidia hafa hrunið undanfarna daga.

Þá hafa hluthafar fyrirtækisins höfðað hópmálsókn gegn Huang og fyrirtækinu sjálfu. Saka þeir Huang og fyrirtækið um að hafa villt um fyrir sér vegna framhjáhaldsins. 

Þá hefur New York Times greint frá því að Huang hafi einnig átt í öðru ástarsambandi utan hjónabands við undirmann sinn. Greina þeir frá því að myndbandsupptökur sýni Huang láta blíðlega við Kimberly Powell sem starfar sem aðstoðarforstjóri heilbrigðissviðs Nvidia.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅