Colom hafði betur í Mississippi

Scott Colom verður næsti öldungadeildarþingmaður Mississippi-ríkis.

Scott Colom verður næsti öldungadeildarþingmaður Mississippi-ríkis. AFP/Brandon Bell

Fjölmiðlar vestanhafs greindu frá því nú fyrir stundu að demókratinn Scott Colom hefði haft betur í öldungadeildarkosningunum í Mississippi gegn sitjandi þingmanni repúblikana, Cindy Hyde-Smith.

Mjög mjótt var á munum á kosninganótt í ríkinu, og var Colom á einum tíma með einungis um 30 atkvæða forskot á Hyde-Smith.

Talning á utankjörfundaratkvæðum og svonefndum vafaatkvæðum, þar sem kjósendur fá tækifæri til þess að bæta úr mögulegum annmörkum á kjörseðli sínum, hefur hins vegar haldið áfram síðan, og hefur forskot Coloms vaxið jafnt og þétt eftir því sem talningunni hefur undið fram.

Í nýjustu atkvæðatölum er Colom með 473.336 atkvæði, en Hyde-Smith með 468.667 og munar því einungis 4.669 atkvæðum á milli þeirra.

Hins vegar er talið að miðað við þau atkvæði sem enn á eftir að telja, sem og úr hvaða kjördæmum ríkinsins þau atkvæði koma eigi Hyde-Smith ekki lengur fræðilegan möguleika á því að vinna upp forskot Coloms. 

Sá fyrsti frá lokum borgarastríðsins

Colom er saksóknari í Mississippi-ríki. Hann verður nú fyrsti demókratinn frá árinu 1982 til að vinna öldungadeildarkosningar í ríkinu. 

Þá er hann jafnframt fyrsti blökkumaðurinn frá árinu 1874 til þess að verða öldungadeildarþingmaður ríkisins, en það ár var repúblikaninn Blanche Bruce kjörinn af ríkisþingi Mississippi til að gegna embættinu á „endurreisnarárunum“ eftir borgarastríðið. 

Mississippi er jafnframt áttunda ríkið, þar sem demókratar náðu að hirða öldungadeildarþingsætið af repúblikönum, en þar á meðal voru lykilvígi repúblikana á borð við Texas, Kansas og Iowa. 

Demókratar hafa því nú 55 þingsæti af 100 í öldungadeildinni. Enn á eftir að ljúka talningu í Alaska-ríki, en þar er demókratinn Mary Peltola með nauma forystu á frambjóðanda repúblikana og sitjandi þingmann, Dan S. Sullivan.

Auglýsingin vakti athygli

Colom hefur sagt í viðtölum að ekki margir hafi haft trú á að hann gæti unnið ríkið, og gagnrýndi hann um daginn nokkur af skoðanakannanafyrirtækjum Bandaríkjanna, sem höfðu afskrifað hann. 

Ein af kosningaauglýsingum hans hefur hins vegar vakið athygli út fyrir mörk ríkisins í Bandaríkjunum, en þar gagnrýndi hann ummæli Hyde-Smith, sem hafði hvatt kjósendur sína til þess að velja sér ódýrari prótíngjafa í ljósi mikillar verðbólgu. 

„Velja annað prótín? Hún hefur misst vitið,“ segir einn leikarinn í auglýsingunni. „Ég myndi frekar velja mér annan öldung“. Í ummælum við myndbandið á YouTube segir einn að þetta sé auglýsingin sem hafi unnið kosningarnar fyrir Colom.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅